Hvers virði er ég?

Seinast liðinn laugardag fór ég á staffa djamm með Apple þar sem kvöldið byrjaði á að farið var í Salinn að sjá “Hvers virði er ég?” með Bjarna Hauk Þórssyni. Þetta er uppistand um ekki neitt og bara eitthvað tilgangslaus rugl með frekar leiðinlega og fyrirsjáanlega brandara, sem betur fer var þetta ógeð ekki langt.

Eftir þetta leiðinlega uppistand fórum við á Fisk Markaðinn og fengum geðveikan mat sem auðvitað varð að borða með prjónum, nema eftirréttinn, það hefði verið gaman samt, súkkulaði kökur og Crème Brûlée með prjónum væri magnað. Reyndar fannst mér geðveikt kjánalegt að flestir voru með lambakjöt en ég kaus að fá mér steinbít enda meikaði ekki annað sense á einum flottasta sjávarrétta veitingarstað landsins :)

Eftir matinn var tekinn púlsinn á næstulífi Reykjavíkurborgar og ekki haldið heimleiðins fyrr en undir morgunsárið.

Nennti ekki að vera með myndavél en hér eru nokkrar myndir frá seinustu helgum:

Eftir vísó í Verkfræðifélagið fyrir tveimur vikum:

Loka partý 3. árs nema seinustu helgi:


Related posts from the blog:

2 comments

  1. Egill

    “Þetta ógeð”! Þessi setning gæti líka verið álíka mannskemmandi og bloggið fyrir þennan kall!

  2. Ógeð vísar í sýninguna