Hvítasunnuhelgin

Þá er enn ein helgin afstaðin, þar sem þetta var hvítasunnuhelgin var hún þriggja daga en ég ákvað nú samt að vera bara rólegur á föstudeginum. Laugardagurinn fór hinsvegar hressilega í geðveikina þegar við héldum djamm fyrir þá sem hafa verið að vinna fyrir Pragma í vetur og svo kíktu nokkrir í viðbót líka við. Það var hressilega tekið á því með óheilbrigðum drykkjuleikjum og látum þar sem farið var fram úr öllu. Eftir óhóflega drykkju var haldið niðr í bæ að djamma.


Restin af myndunum

Fyrst þetta var nú þriggja daga helgi þannig að næsta skrefið var náttúrulega að skemmta sér líka á sunnudeginum og endaði það á að ég ætlaði að skutla Héðinn að sækja bílinn sinn til Ella og mættu við þá ekki uppá Ella og Palla bera að ofan búnir að búa til grill úr innkaupakörfu að grilla í sólinni redneck style. Það leið ekki á löngu þar til að nokkrir bættust við og dottið var í drykkjuleiki eins og daginn áður nema nú var jafnvel meira tekið á því. Auðvitað var endað niðrí bæ þar sem ég fór á kostum við að láta eins og bloody fífl!

Niðurstöður helgarinnar:

- Ég er hættur að taka skot, ég verð geðveikur í hausnum af þeim
- Ég kann ekki að tala við eða umgangast kvennfólk
- Ég skil ekki kvennfólk og mun aldrei gera
- Ég er almennt asni þegar ég reyni að tala við kvennfólk í glasi
- Ég þori ekki að tala við kvennfólk nema í glasi (vítarhringur dauðans)
- Ég veit ekkert hvað ég vill í lífinu
- Þessi listi gerir mig þunglyndan


Related posts from the blog:

Leave a Reply