Í skólanum er skemmtilegt að vera…..

Úhhjee skólinn byrjaður aftur, það er alveg yndislegt að vakna í morgun, fara út í bíl, skafa rúðurnar að innan og keyra af stað. Síðan tók við alveg ótrúlega skemmtilegur og uppörvandi tími í Tölfræði II ***BOOM*** (frell, ég brann yfir á kaldhæðni). Það er samt óþolandi hvað er ógeðslega kalt þessa vikuna, ekki beint spennandi að vera úti, þrátt fyrir að 2007 eigi víst eftir að verða met ár í hita…. það er allavegana ágætis veður í London þannig að næsta helgi verður fín, 10-13 stiga hiti þar.

Helgin var einstaklega blendin, föstudagurinn fór bara í æfingu og lærdóm fyrir næstu helgi. Á laugardeginum var hinsvegar allt á fullu, vinna um morguninn, svo beint í þrettánda matarboð hjá Elvu frænku með fullt fullt af goodie mat. Síðan var beint niður á Pravda í kveðjupartý fyrir Danmerkurfarana, Rósu, Sigga og Tinnu. Fátt betra en að vera niðrí bæ og fá frían bjór og svo bjór á 350 kall. Frá Pravda var haldið á Barinn og haldið áfram að djúsa með Bjössa, Snorra og Kára. Í þetta skiptið var þetta ótrúlegt en satt bara rólegt kvöld í drykkjunni og ég var bara góður á því allan tíman í þetta skiptið. Sunnudagurinn fór svo í gífurlega gott chill í seinasta skiptið í bili fyrst skólinn er byrjaður aftur.

Kjánalega mikið af myndum frá kveðjupartýinu

Bara 3 dagar í London.

Stöðuyfirlit átaks:
Dagur 1 – 27/12, morgun – 80,3 kg
————–SNIP———–
Dagur 10 – 8/1, kvöld – 77,6kg‘, ‘Í skólanum er skemmtilegt að vera…..


Related posts from the blog: