Internet Explorer minn rass
Posted on Jul 6, 2006 in BlogÉg bókstaflega skil ekki afhverju fólk stendur enn í því að nota þetta ógeð sem Internet Explorer er á Windows. Um daginn fattaði ég, mér til eindæmra leiðinda að vefsíða félags verkfræðinema Pragma.is var barast ekki að koma rétt út í IE en gerði það rétt í öllum öðrum vöfrum. Þar sem að 43% af þeim sem höfðu heimsótt síðuna í seinasta mánuði voru að nota IE varð ég náttúruleg að lagfæra þessar litlu villur sem skáru svo í augun. Það fóru alveg 4 tímar bara í að finna þessar ógeðis villur sem er náttúrulega ekkert grín þegar tímakaupið er 0kr og þetta er bara viðbót við svona 10-12 tímar sem ég er þegar búinn að eyða í IE bug fixing á síðunni. Því mæli ég með að allir skipti yfir í Firefox.

Á öðrum og glaðlegri nótum rakst ég á myndbandið við Hockey Monkey með The Zambonis og er hægt að sjá það hér: QuickTime | Windows Media. Skemmtilega súrt myndband í anda við lagið.
Svo rakst ég á frábært video sem Aggi tók um helgina þegar allir fóru á Hvolsvöll á laugardeginum og Úlli var sannarlega illa fyrir kallaður.
Related posts from the blog:





