KickASS pizza

Á miðvikudaginn fengu Ómar og Darri þá snilldar hugmynd að taka fyrir Einar með því að búa til fake pizza stað og láta fólk hringja í númerið hjá Einari. Ég var alveg til sex um morguninn að gera heimasíðu sem væri trúverðug til að fólk myndi fara á hana og trúa því að þetta væri alvöru:

www.kickasspizza.com

Þegar síðan var svo tilbúin þá fengum við Ingvar til að setja hana inná 69.is þannig að sem flestir myndu falla fyrir þessu. Um leið og síðan fór þar inn þá byrjaði fólk að hringja þannig að þetta er klassískt dæmi um hvað íslendingar geta verið vitlausir. Á föstudagskvöldinu var svo fyrirpartý hjá mér áður en við fórum á grímuball HR þannig að þegar Einar kom þangað skemmtum við okkur vel yfir hringingunum og lékum okkur að því að bulla í fólki:

Hjá mér var vel drukkið, stútuðum tveimur kössum af bjór og strákarnir stútuðu líka flösku af ópal og flösku af tópas, en ég sat hjá enda langar mig sennilega aldrei í það aftur eftir London :P

Eftir smá tíma hjá mér skelltum við okkur á ballið og þar var alveg fáranlega mikil ölvun, ég er víst einn af fáum í hópnum sem man eftir að hafa verið á ballinu. Nennti reyndar ekki niðrí bæ þannig að ég fór bara heim eftir ballið.

Héðinn hriðjuverkamaður:

Bjarki biskup giftir fólk:

Ómar og Ómar (gott dæmi um hversu drukkið fólk var):

Á laugardeginum var svo vinna og svo matur og drykkja hjá Berglindi þar sem farið var í drykkjuleik sem var frábær skemmtun og heldur betur vel drukkið. Það var reyndar orðið frekar erfitt að standa í að drekka undir lokin þegar allar reglurnar voru komnar, ef maður ætlaði að drekka þurfti maður að slá Ella tvisvar með vinstri hendinni, gera freaky handahreyfingar og segja gúggú og drekka svo með báðum höndum.


Related posts from the blog:

2 comments

  1. gaur akkru ertu að blörra simann hja þér á þessari pizza síðu þegar þú birtir það á þessari (hmmm)

  2. Síminn var birtur fyrst ekki blörraður svo fólk hringdi, þegar einhverjir bjánar voru enn að hringja á laugardags morgun þá blörraði ég númerið.

Leave a Reply