Lærdóms laugardagur

Blah, það er svo gaman að læra á laugardögum eða þannig. Það er ekki til sú manneskja sem getur sökkt sér í lærdóm á þessum óguðlega tíma sem er eftir 18 á laugardögum. Í gær var staffadjamm þar sem drukkið var fáranlega mikið af bjór, eftir að drykkjan var komin vel á ferð kíkti ég niðrí bæ og hitti Pragma fólkið sem var þá komið úr vísó í Vodafone.

Í dag var svo vinna og beint uppí skóla, nennti nú ekki að fara læra alveg strax enda stutt í leik Íslands og Slóveníu. Ég fór og hitti á Héðinn, Hilmar og Andra útí kringlu og við ætluðum að horfa á leikinn útí skóla en eins og alltaf var afruglarinn á fritzinu og ekki séns að horfa á leikin þannig að við skelltum okkur bara á Kringlukrána og horfðum á þennan snilldar leik þar sem Ísland vann Slóveníu með einungis einu marki og tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum.

Eftir svona gott gengi hjá “strákunum okkar” þá ætti maður auðvita að fara fagna en ég ætla nú bara að læra enda veitir ekki af, tími í fyrramálið (klukkan 9 á sunnudegi, ófyrirgefanlegt…). Þannig núna er það bara að sökkva sér aftur í bækurnar.

Svo er kominn tími á grímuballið næsta föstudag, þarf að fara finna einhvern búning. Kanski ég fari sem Alf eða Hamlet ef ég get reddað svona fancy pance föt (er samt ekkert voða hrifinn af því að fara í gammosíur). Ef einhver er með aðrar hugmyndir þá eru þær vel þegnar!


Related posts from the blog: