Loksins loksins er skólaárið búið. Kláraði loksins í dag þegar kynningin á viðskiptaáætluninni okkar var flutt sem gekk mjög vel. Í dag var líka fyrsti dagurinn í nýju vinnunni hjá Arion þar sem ég lennti í fyrst skipti í að þurfa að mæta í vinnu þar sem er dress code… Ég mátti ekki mæta í gallabuxum og þar sem ég á ekkert nema gallabuxur þurfti ég að sjálfsögðu að redda því. Fór og tók dress up á laugaradaginn… aldrei keypt svona mikið af fötum í einu en ég er allavegana “decked out for now”.
Helgin var annars góð þrátt fyrir frekar súrt föstudagskvöld. Hélt smá grill á föstudeginum og það tókst ekki betur en svo að gasið kláraðist og við þurftum að redda okkur með pönnu og ofn en það var svo sem fínt. Eftir grillið var haldið niður í bæ þar sem einhver samkeppni var í að troða HRingum inná Vegamót. Ég svaf bara tvo tíma aðfaranótt föstudags þannig að ég var við að sofna og gerði nokkrar tilraunir til þess meðal annars á bekk á Lækjargötu. Komst samt lifandi heim og svaf vel og lengi. Á laugardeginum skellti ég mér í partý hjá Berglindi. Gaman að fara í Eurovision/Kosningarpartý þar sem næstum öllum er sama um Eurovision og ekki einn maður sá lögin flutt. Kosningarnar voru nokkuð spennandi og athyglisvert að sjá hver loka niðurstaðan verður þó svo að áframhaldandi stöðnun sé líklegasti kosturinn. Þegar farið var úr partýinu var gerð önnur tilraun til að fylla Vegamót af HRingum og gott ef það tókst ekki í þetta skiptið :P
Á öðrum nótum þá var ég að klára að glápa á tuttugasta þátt í þriðju seríu af Lost. Já ég er enn að glápa á þessa bölvuðu steypu, núna loksins komu fram nokkur svör en eins og alltaf skapaði það bara fleiri spurningar…. og nú er búið að ákveða að þáttunum ljúki ekki fyrr en eftir fimm seríur. Ekki nóg með maður fái aldrei það sem maður vill (svör) í þessum þáttum þá er það sem er búið að koma fram uppá síðkastið orðið algjörlega fjarstæðukennt bull og bara spurning um hvað fólk meikar að hanga lengi yfir þessum þáttum, ég er allavegana á seinasta hálmstráinu. Hér er ágætis comic um hvað þetta er mikið rugl:
Related posts from the blog:






