Last blog in Icelandic – Lífið í London
Posted on Dec 27, 2008 in BlogThis will be my last blog in Icelandic for a while…. well most likely permanently. This blog started out in English back in 2005 and then switched to Icelandic in early 2006 after multiple requests to keep the content Icelandic. But since I’m now living in the United Kingdom I have chosen to switch back to English.
But for now this is the last blog post in Icelandic and following that all posts will be in English.
Lífið í London
Núna er ég búinn að búa í London næstum þrjá mánuði og ekki nennt að blogga eitt né neitt þannig að það er mikil ritstífla sem er kominn tími til að sprengja með nokkrum kössum af dínamíti. Auðvitað verður maður að byrja á því að ræða aðeins um hvernig seinustu mánuðir eru búnir að vera og hvernig lífið hefur verið í London.
Námið
Námið sem ég er í er master í áhættustýringu og fjármálaverkfræði (e. MSc Risk Management and Financial Engieering) við Imperial College í London. Kúrsinn er kenndur við viðskiptadeild skólans en skólinn er þó frægastur fyrir sterka stærðfræði og verkfræði kennslu. Áður en ég byrjaði námið þurfti ég að klára þó nokkra undirbúningskúrsa sem voru miðaðir að því að allir hefðu nægan grunn til að takast á við námið. Núna á fyrstu önn er ég einungis búinn að vera í tveimur kúrsum: Valuation Theory og Financial Statistics. Valuation Theory er undirstöðukúrs í virðisgreining á öllum tegundum af fjármála einingum þar sem farið var hratt og örugglega í gegnum námsefnið sem var gífurlegt magn. Financial Statistics er ótrúlega flókinn kúrs blandaður af tölfræði, tímaraðagreiningu, módel byggingu og econometrics.
Persónulega fannst mér Valuation Theory ekki svo erfiður kúrs enda búinn að sjá meiri hlutann af námsefninu í grunnnáminu en Financial Statistics er gífurlega flókinn kúrs og þó ég hafi séð margt af efninu áður þá er ég algjörlega lost í miklum hluta efnisins aðalega vegna of mikillar áherslu á grunninn en svo þegar farið var yfir flóknari efnið þá var farið alltof hratt yfir það.
Í báðum kúrsum er ég búinn að ljúka stórum verkefnum. Í Valuation Theory var það greining á fjármagnskostnaði og í Financial Statistics var það nokkur lítil verkefni sem coveruðu um það bil helminginn af námsefninu. Næsta skref er svo að fara í próf í þessu öllu saman í janúar. Weeeeeeeeeee ég hlakka svo til…..
Heimilið
Þegar maður flytur að heiman verður maður náttúrulega að búa einhverstaðar og í mínu tilviki þá ákvað ég að leigja í gegnum skólann. Íbúðin er í litlu úthverfi í vestur London sem heitir South Ealing. Hverfið er kósí og fínt og flest allt sem maður þarf nálægt manni. Ég bý með þremur öðrum gaurum í passlegu húsi þar sem við erum allir með okkar eigin herbergi en deilum eldhúsi og baðherbergjum. Fyrirkomulagið hefur reynst vel og ég er virkilega ánægður með að búa í London.
Félagsskapurinn
Maður getur náttúrulega ekki verið bara að chilla í einhverju bulli alla daga þó maður sé fluttur til annars lands. Maður er nú félagsvera og verður að umgangast fólk eins og venjan er. Í stúdentaíbúðunum þar sem ég bý er ég búinn að kynnast fjöldann allan af fólki. Fólkið er af mismunandi uppruna en stór hluti er frá Kína. Kínverjarnir eru fínir en ekki miklir djammarar eins og Íslendingar, sem sást best þegar við vorum á einu pub crawl og tveir Kínverjar sem voru með okkur voru komnir á rassgatið eftir þrjú glös af bjór. Kínverjarnir eru ekki einir í hverfinu og það er nóg af fólki allstaðar af úr Evrópu sem býr í stúdentaíbúðunum og Evrópubúarnir eru nær okkur í menningu og félagslyndari en Kínverjarnir.
Í kúrsinum er svo svipaða sögu að segja með skiptinguna. Í bekknum eru 100 manns og þar af einn þriðji kínverjar, restin eru mikið til Frakkar, Grikkir, Indverjar, Ítalir og fleira. Það er meira að segja einn annar Íslendingur í kúrsinum. Flest allir í kúrsinum er mjög fínir þó ég sé ekki búinn að kynnast nema hluta af fólkinu enda kanski ekki auðgert að kynnast 100 manns á einu bretti en það kemur hægt og rólega.
Frístundir
Maður getur nú ekki eytt öllum sínum tíma í að læra þegar maður er þarna úti þannig að auðvitað verður maður að gera eitthvað í frítímanum. Augljóslega hef ég ekki verið að eyða tímanum í að blogga heldur hef ég aðalega verið að stunda íþróttir og skemmta mér. Skólinn er með stóra og fína íþróttamiðstöð rétt hjá viðskiptaskólanum sem ég hef frían aðgang að og nota óspart, rosalega þægilegt og fínt. Einnig hef ég verið að æfa handbolta með Imperial College liðinu og fótbolta með Clayponds FC sem er lið fyrir stúdentaíbúðirnar þar sem ég bý.
Skemmtanalífið
Skemmtanalífið í London er frekar frábrugðið því sem maður á að venjast heima enda staðirnir einungis opnir til 23 á virkum dögum, 1 um helgar og svo eru bara stóru klúbbarnir með opið til 3 eða 4. Þetta gerir það að verkum að djammið byrjar frekar snemma ef maður ætlar út á lífið í miðbæ London en hinsvegar er hægt að finna litla staði með langa opnunartíma í útjaðri London sem er mjög fínt að fara á ef maður nennir ekki að fara út á lífið alltof snemma. Það er hinsvegar mjög mismunandi hvernig djammið fer eftir því með hvejrum maður fer. Ef ég fer með fólkinu sem býr nálægt mér þá er yfirleitt tekið eldhúspartý fyrst og svo farið á pub eða lítinn skemmtistað þar sem er hóflegt verð á drykkjum en ef ég fer með fólkinu sem er með mér í kúrs þá er yfirleitt farið beint á einhvern high scale skemmtistað í miðbæ London sem er fok dýr. Vegna fjölbreytni í hópunum sem ég umgengst er ég búinn að kynna mér skemmtanalífið nokkuð vel og líkar bara vel en það er svoldið dýrt fyrir fátækan námsmann þannig að það verður örugglega einhver slökun á skemmtanalífinu eftir áramót….
Related posts from the blog:
- Should this blog switch to Icelandic?
- London
- London 2007
- Tiny bits of snow vs London
- Icelandic protests on the rise





