Laugadagsfólk er skull
Posted on Oct 2, 2006 in BlogÉg er búinn að komast að þeirri niðurstöðu að fólk sem kemur í Apple búðina á laugardögum eða hringir inn á laugardögum er upp til hópa erfitt fólk. Það er ekki gaman að vinna á laugardögum… en það er samt betra en var í BT þar sem laugardagar voru “I not speak Icelandic nor English” dagar (burt séð frá því að sá sem talar ekki ensku myndi ekki segja nor :P).
Allavegana þá var örugglega sveittasta partý allra tíma haldið á föstudaginn. Útskriftarráð hélt partý í Skeifunni eftir vísó í Alcan (vissi að það yrði slöpp ferð þannig að ég sleppti henni) og þangað var einnig boðið verkfræðinemum úr HÍ þannig að salurinn varð stappaður, örugglega verið svona 170 manns inni þegar það var mest og löglega má salurinn bara taka 130. Þannig að það varð actually að vísa fólki frá sem var ömurlegt… nennti ekki að vera neitt lengi í bænum samt því ég var í svona áfengi hefur engin áhrif á mig skapi sem endar alltaf þannig að áhrifin koma mjög seint og öll í einu. Þannig að ég ákvað bara að koma mér heim uppúr hálf tvö og vakna frekar snemma og mæta á enn eina skull laugardagsvaktina í Apple.
Núna er það svo lærdómur fyrir miðannar próf Fjárstýringu sem er í fyrsta tíma í fyrramálið, hvurslags illmenni er með próf í fyrsta tíma á mánudegi, ég á svo eftir að sofa yfir mig.

Related posts from the blog:






Djöfulsins ástand er þetta á þér.