Laugardagar eru og verða skull
Posted on Apr 7, 2007 in BlogÉg hef sagt það áður ég segi það aftur, laugardagsfólk er skull. Fólk sem kemur í Apple á laugardögum er í mörgum tilvika frekt, leiðinlegt eða ótrúlega vitlaust, það er samt ekkert miðað við fólkið sem hringir niður eftir. Stór hluti af símtölunum er náttúrulega asnaleg mál þar sem ég eyði tíma í að lesa upp leiðbeiningarnar fyrir fólk því íslendingar gjörsamlega neita að lesa leiðbeiningar. Síðan er fólk sem þarf að fá lýsingu á hverjum einasta hlut í smá atriðum. Þessum seinni hóp þarf einnig að kenna skref fyrir skref allt sem kemur að tölvum, hvernig á að ræsa forritin, endurræsa, fara á netið, nota google og þar fram eftir götunum. Flestir eru svo með Windows þannig að þetta fellur ekki einu sinni undir eitthvað sem ég ætti að vera að gera…. Seinast en ekki síst er “afhverju er tölvan mín ekki komin” fólkið, það er óþolandi að tala við það því ég hata að hafa ekki svör fyrir greyið fólkið því Apple úti eru með það allra lélegasta skipulagskerfi þegar kemur að sendingu á tölvum sem ég veit um….
Því eru flestir laugardagar svona, ég í hatræmum fíling:

Annars er alltaf jafn gaman að hanga í skólanum heilu og hálfu dagana að læra undir próf sem meirihlutinn á eftir að skítfalla á. Ómar Þór varð víst svo viss um að lögfræðinemar myndu hertaka borðið hans að hann tryggði sig í bak og fyrir með vitawrap svo engin myndi taka dótið sitt (smella fyrir stærri myndir):
Related posts from the blog:
- Laugadagsfólk er skull
- Alveg að verða búinn í prófum
- Fyrsta helgin afstaðin
- Stjörnuspá
- Styttist í Iceand Airwaves







