Ljóti magi

Ahh fewy maginn er enn ekki up to par. Í gær fórum við í vísindaferð í Ölgerðina og það var svosem ágætt, fengum túr um verksmiðjuna, fengum að taka blintbjórpróf (sem ég stóðst fullkomlega að sjálfsögðu) og svo var boðið uppá bjór og Doritos. Eftir ferðina var svo haldið niðrí bæ, við skelltum okkur þá á American Style því að allir voru að drepast úr hungri. Ég ákvað að taka bara samlóku og náði ekki einusinni að klára hana… Eftir það héldum við á Pravda og komusmt að því að það var bara ógnvænlega pakkað enda klukkan 20:30 (WTF!!!). Kvöldið var samt frábært að nokkru leiti, Héðinn og Helgi eru búnir að vera í fjögra vikna bindindi og voru núna loksins að byrja að drekka aftur þannig að þeir voru sóðalega mökkaðir báðir tveir. Fleiri einstaklingar eins og Ómar Berg voru líka þvílíkt steiktir og léku á alls oddi. Ég sá þvílíkt eftir að hafa ekki verið með myndavélina. Þrátt fyrir gott kvöld kom ég litlu af bjór niður og hef sennilega ekki tekið nema svona fjóra heila bjóra frá fimm til tólf sem er náttúrulega glötuð framistaða en maginn leyfði ekki meira og ég endaði á að fara edrú heim. Sem betur fer er lystin aðeins að koma aftur og mér tókst áðan að borða almennilega í fyrsta skipti síðan á miðvikudaginn þannig að nú er bara að bæta sjálfum sér þetta upp á OKTÓBERFEST næsta föstudag :)


Related posts from the blog: