Manchester tónleikarnir
Posted on May 8, 2006 in BlogEftir vinnu á laugardaginn skellti ég mér á Manchester tónleika Icelandair í Laugardagshöllinni með Sigrúnu, Bjögga og Möggu. Vegna misvísandi upplýsinga um byrjun tónleikana tókst mér að missa af fyrstu hljómsveitinni Foreign Monkeys en náði öllum hinum. Fyrst voru Benni Hemm Hemm sem voru nokkuð flottir en mjög rólegir og skrítið að þeir voru níu á sviðinu og þar af fimm með blásturshljóðfæri sem voru næstum ekkert notuð. Á eftir Benna Hemm Hemm komu svo Trabant og voru náttúrulega snilld eins og alltaf, gjörsamlega þeir bestu á tónleikunum. Fjórðir á svið voru Echo and the Bunnymen sem voru ágætir nema hvað söngvarinn var soldið down. Elbow komu á eftir Echo and the Bunnymen og þeir voru ekkert smá rólegir, einhver svona Coldplay pæling, margir nenntu ekki að hlusta á það eins og við og skelltu sér því fram. Seinastur á svið var svo Badly Drawn Boy sem var frekar rólegur framanað en var mjög góður undir lokin og spilaði þá lögin sem maður þekkti með honum. Allt í allt mjög fínir tónleikar.
Eftir tónleikana skelltu Magga og Bjöggi sér heim að horfa á Lost, oh þetta veiklinda hálfgifta fólk :P Ég, Sigrún og Heiða frænka hennar skelltum okkur hinsvegar niðrí bæ, þar sem var djammað fram eftir nóttu eins og venjulega.
Related posts from the blog:





