Maraþon

Þá er ég dottinn í enn eina geðveikina. Búinn að ákveða að taka allavegana hálft maraþon hlaup í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst, kanski heilt ef ég treysti mér í það. Tók fyrstu æfinguna í gær og hljóp 22 kílómetra sem er rétt yfir hálft maraþon. Þegar ég kom heim var ég alveg búinn á því en samt ekki jafn illa kominn og ég hafði áhyggjur af, þannig að mér lýst bara vel á þetta. Hinvegar vaknaði ég nú með smá hasperrur í morgun og ekki alveg búinn að losna við verki þegar ég labba eitthvað en þetta verður örugglega orðið betra uppúr hádegi. Nú er bara að fara að massa þetta í bland við lyftingarnar þannig að maður fari í gegnum þetta í ágúst eins og að drekka vatn. Eini gallinn sem ég sé á þessu er að maður verður víst að sleppa því að fá sér bjór í Tuborg útilegunni og fara snemma heim en hún er einmitt 17. ágúst, daginn áður en hlaupið er :/


Related posts from the blog:


1 Comment

  1. Talandi um Maraþon þá held ég að leikurinn sé mun betri en þetta hlaupu rugl:

    http://en.wikipedia.org/wiki/Marathon_(computer_game)

    en ég þarf líklegast ekki að segja þér það.