Matareitrun
Posted on October 5, 2006 in Blog
OH boj, í gær ætlaði ég að vera rosalega sniðugur og skella saman rosalega flottu salati. Tók allt fram checkaði hvort það væri ekki í fínu lagi með það og skellti saman salatinu. Svo þegar ég byrjaði að borða fannst mér eitthvað vanta þannig að ég sótti mér dressingu í ískápinn. Flott mál bragðaðist vel og allt það. Eftir matinn skellti ég mér í ræktina og fór allt í einu að finna til í maganum þannig að ég fór heim og rétt meikaði það innúr dyrunum áður en ég ældi eins og múkki. Þá fer ég náttúrulega og checka á eina hlutinum sem ég hafði ekki kíkt á að væri í lagi og auðvitað var það dressingin, hún var útrunnin May 2006!!! Þannig að ég hugsa okay “I”m fucked”. Ég endaði á að vera spúandi hægri vinstri til klukkan 4 um morguninn þegar mér tókst loksins að sofna. Núna var ég svo að ná að koma fyrsta munnbitanum niður í 26 tíma og er enn að drepast í maganum…. Aldrei skal ég borða nokkurn hlut án þess að checka daginn sem maturinn verður útrunninn.
Related posts from the blog:





You don’t make friends with salad