Meiri föstudags stærðfræði

Í seinustu viku var það 4=5 en núna er það 4=3 og þar með 5=4=3:

Gefum okkur að við séum með a,b og c sem óræðar breytur
a + b = c

Getum umritað þær svona:
4a – 3a + 4b – 3b = 4c – 3c

Sameinum svo þá liði sem inni halda 4 vinstra megin við jafnaðarmerkið og 3 hægra megin:
4a + 4b – 4c = 3a + 3b – 3c

Næst tökum við 4 og 3 út fyrir sviga:
4 * (a+b-c) = 3 * (a+b-c)

Margföldum svo báðu megin með 1/(a+b-c) og þá stendur eftir:
4 = 3

Þannig að með þetta fyrir mér er augljóst að það skiptir engu máli hvort ég fæ mér 3,4 eða 5 staup í kvöld þetta er allt sama magnið.

Flipp dagsins, Transformers strigaskór, WTF:


Related posts from the blog: