28 Weeks Later
Posted on May 18, 2007 in MoviesEftir að hafa séð bull zombie/kinda myndina Black Sheep hvað var þá ekki meira viðeigandi en að glápa á framhaldið af einni bestu zombie mynd allra tíma (28 Days Later) og varð því 28 Weeks Later fyrir valinu. Myndin gerist eins og nafnið gefur til kynna 28 vikum eftir að Rage vírusinn sem var kynntur í fyrri myndinni slapp út. Vírusinn hefur þurrkað út næstum alla íbúa Bretlands en talið er að nú seú allir sýktir dánir. Bandaríkja her hefur verið fenginn til að tryggja London og byrjað er að flytja fólk aftur í borgina. Hinsvegar kemur í ljós að vírusinn hefur ekki alveg dáið út og allt fer að sjálfsögðu til fjandans eins og góðri hrollvekjumynd sæmir. Þessi er engan vegin jafn góð og fyrri myndin en ég mæli með að þeir sem fíluðu fyrri myndina kíki á þessa.

Related posts from the blog:





