300

Usssh, loksins fékk maður að sjá meistarastykkið 300 byggða á samnefndri teikimyndasögu Frank Miller eftir að hafa beðið síðan trailerinn kom fyrst í október. Myndin gerist árið 480 fyrir krist og fjallar um orrustuna við Thermopylae þar sem 300 Spartverjar reyndu allt sem í sinu valdi stóð til að verjast yfirgnæfandi innrásarher Persa. Myndin er með svoldið svona teikimyndastíls yfirbragð í anda upprunalegu bókarinnar eftir Frank Miller og kemur það einstaklega vel út. Flestir leikararnir standa sig frábærlega og þá sérstaklega Gerard Butler sem Leonidas konungur. Mæli virkilega með að fólk kíki á þessa mynd og ég bíð spenntur eftir að hún komi út á DVD.


Related posts from the blog: