A Scanner Darkly
Posted on Jul 24, 2006 in MoviesAhhh það er fátt meira gefandi en að láta sér engu lykta um allt í heiminum og njóta þess að vera heim og hafa ekkert að gera á sunnudegi. Ég ákvað að taka smá indie flick áhorf á milli þess að spila Civ IV, Titan Quest og muncha. Fyrri myndin sem ég horfði á var A Scanner Darkly með Keanu Reeves, Winona Ryder, Woody Harrelson og Robert Downey, Jr. í aðalhlutverkum. Myndin er byggða á samnefndri bók eftir Philip K. Dick (Blade Runner, Total Recall, Minority Report) og er mjög myrk í anda bókarinnar. Myndin fjallar um Bob Arctor sem er lögreglumaður sem er undercover að koma sér í mjúkinn hjá eiturlyfjafíklum í von um að komast að upplýsingum um dreifendur á hinu hættulega efni Substance D. Arctor neyðist til að áneytjast eiturlyfsins til að fjalla í mjúkin hjá fíklunum og ekki líður á löngu þar til að hann er orðinn veruleikafirtur og veit ekki hvað er satt og rétt lengur.
Myndin er algjör snilld, hún er mjög dimma og sýnir slæman heim eiturlyfja vel en er einnig fyndin á köflum þökk sé snargeiðveikum persónum sem Robert Downey Jr og Woody Harrelson leika. Öll myndin var einnig skotin stafrænt og svo teiknað ofaní rammana með svonefndri rotoscope tækni og það kemur mjög töff út.
Einkunn: 4/5
Related posts from the blog:






