Bourne Ultimatum

Fór að sjá Bourne Ultimatum í gær. Þeir sem ekki vita þá er Bourne Ultimatum þriðja myndin í Bourne seríunni sem er byggð á bókum Robert Ludlum. Fyrri myndirnar eru Bourne Identity og Bourne Supremacy. Bourne myndirnar eru úrvals hasar myndir enda Bourne einn harðasti njósnari/morðingi sem um getur. Myndin heldur áfram þar sem Supremacy endaði og segir frá flótta Bourne í frá yfirvöldum í Rússlandi og áframhaldandi leit hans um alla Evrópu af upplýsingum um mennina sem sem sáu um að þjálfa hann í von um að finna uppruna sinn. Leið hans liggur svo að lokum til Bandaríkjana þar sem hann kemst auglit til auglits við fortíð sína. Hér á ferðinni snilldar hasarmynd og mæli ég klárlega með að menn horfi á allar Bourne myndirnar. Ég horfði á Identity og Supremacy seinustu helgi til að rifja upp söguþráðinn og þó menn geti sleppt því áður en þeir horfa á þessa þá mæli ég með því að gera það áður en þeir fara á Ultimatum.


Related posts from the blog: