Casino Royale
Posted on Nov 19, 2006 in MoviesEftir að hafa verið ómannlega duglegur í gær og eyða enn einu laugardagskvöldinu í að læra ákvað ég að nú væri málið að skella sér að sjá nýju Bond myndina. Ég og Óli skelltum okkur niður í bæ í Regnbogan um ellefuleitið. Myndin fór nokkuð hratt af stað og það leið ekki á löngu þar til Bond var kominn í einn rosalegasta elltingarleik sem sést hefur í Bond mynd. Myndin gaf ekkert eftir og söguþráðurinn hélt fullu flugi allan tíman. Myndin fjallar um að Bond tekur þátt í áhættu miklum poker til að koma í veg fyrir að hriðjuverkamenn komist yfir vinningsupphæðina. Plotið hljómar ekkert rosalega spennandi en ekki láta blekkjast, þessi mynd er alveg frábær þegar kemur að hasar og Daniel Craig kemur heldur betur á óvart sem Bond og slær blautri tusku framaní alla þá sem héldu að hann myndi ekki standa sig í hlutverkinu. Þessi mynd er skyldu áhorf, svo getur maður alveg leyft sér að fara á svona mynd í prófunum enda eitt mikilvægasta atriði myndarinnar það að skortselja sé hættulegt sem fer vel í verðbréfa lærdóminn fyrir þriðjudaginn!
Þegar við komum svo út af myndinni var komið heldur betur ógeeeeðslega mikill snjór og færðin var alveg hrikaleg, skyggni svona 5-7 metrar og bara hægt að sjá út um framrúðuna þannig að maður vissi ekki af öðrum bílum í hringum sig nema af því að sjá rétt svo glitta í ljósin af þeim… sem betur fer var klukkan um 3 þannig að fáir voru á ferð nema leigubílar. Ég varð barast feginn að hafa ekki verið á djamminu í gær :)

Usssh, BARA 114 klukkustundir í bjórinn og ískápurinn orðinn fullur af jólabjór…. gahhh tilhlökkun farin að segja til sín :P
Related posts from the blog:





