Clerks II
Posted on July 24, 2006 in Movies
Uhhjeee, gat loksins séð Clerks II, búinn að bíða dá góðan tíma eftir að sjá hana. Horfði á fyrri myndina um daginn og það skilaði sér í góðum minningum. Í kjölfarið horfði ég náttúrulega á Clerks: The Animated Series og þá var maður kominn í fíling. Clerks 2 hefst tíu árum eftir fyrri myndina og hafa Dante og Randall ekkert breyst, þeir vinna enn í Quick Stop búðinni þar til að hún brennur niður og þeir fara að vinna á Mooby’’s úr einu skíta starfinu í hið næsta. Dante stefnir hinsvegar á að yfirgefa New Jersey og flytja með unnurstunni til Flórída en auðvitað fer allt í rugl eins og venjulega hjá þeim félögum. Myndin er full af skemmtilegum samtölum og rugli eins og venjulega og það er meira að segja “interspecies sex act” sem er mjög mjög truflandi.
Einkunn: 4/5

Related posts from the blog:




