Click

Blehh, drakk allt allt of mikið í gær (tvær kippur eða svo og svo niðrí bæ…) og vaknaði svo ekki fyrr en klukkan 16. Þannig að ekkert annað var fyrir stefnu en leti og videogláp þannig að ég horfði á nýju Adam Sandler myndina Click sem fjallar um Sandler í hlutverki fjöldskyldufaðirs sem vinnur of mikið og vanrækir fjöldskylduna. Hann lendir í því að komast yfir universal fjarstýringu sem leyfir honum að stýra lífinu hans gjörsamlega og öllu í kringum hann en það kemur honum í koll þegar hann byrjar að fast forwarda gegnum lífið og missa af því öllu. Þetta verður honum að lexíu sem er dýrkeypt. Myndin er slök en áhorfanleg gaman mynd sem er allt í lagi að horfa á ef manni leiðist og þarf að klápa á DVD eða eitthvað í sjónvarpinu.


Related posts from the blog: