Die Hard 4.0

Ussshh, fór að sjá Die Hard 4.0 einnig þekkt sem Live Free or Die Hard í gær. Þessi mynd er svo mikið testósterón, karlmennsku mynd að ég get svarið að rúmmálið á kúlunum mínum var örugglega þrefallt á við venjulegt þegar ég labbaði út. Myndin er hreinn og klár hasar í gegn, nóg af spreningum, skotbardögum og ýktum hetjudáðum eins og Die Hard gerist best. Söguþráðurinn er ógnvænlega kjánalegur en hann fjallar um áætlun glæpamanna á að eyðileggja allt það tölvu og tækni umsvif sem heldur uppi Bandarísku efnahagslífi og auðvitað verður gamli góði John McClane (Bruce Willis) að redda deginum eins og honum einum er lagið. Í þetta skiptið fær hann einnig aðstoð frá tölvunördinum Matt (Justin Long) sem skrifaði óaðvitandi einn af algrímunum sem þrjótarnir ætla að nota til að eyðillegja öll kerfin. Vondi kallinn, Thomas Gabriel er leikinn af Timothy Olyphant og því miður virkar hann allt of eitthvað fíngerður til að koma fram sem einhverskonar ógnandi illmenni. Einnig var nokkuð um mistök við klippingu á myndinni sem höfðu greinilega verið gerð til að fá myndina niður úr R einkunn í PG-13 í Bandaríkjunum en ég tel þau hafa verið algörlega óþarfi. Þrátt fyrir smávægileg mistök er þessi mynd barast fínasta afþreying og kom mér á óvart, klassa hasarmynd hér á ferð.


Related posts from the blog: