Direktøren for det hele
Posted on May 31, 2007 in MoviesVar að enda við að glápa á nýjustu mynd Lars von Trier, Direktøren for det hele. Þrátt fyrir að vera ótrúlega sleipur í dönskunni (eitruð kaldhæðni) þá glápti ég á myndina textaða. Myndin fjallar um eigenda dansks tæknifyrirtækis sem vill selja það til Íslendinga (Friðrik Þórs). Vandamál kemur hinsvegar upp því að eigandinn vildi sífellt sleppa við að vera erfiður við starfsfólk sitt og bjó þess vegna til forstjóra fyrirtækisins sem gervi persónu til að koma öllu til skila sem yrði óvinsælt og halda því velvild starfsfólksins. Íslendingurinn er hinsvegar harður á að hann vilji hitta “bossinn” og grípur eigandinn þá til þess ráðs að ráða leikara til að leika forstjóran. Þetta er mjög súr og skemmtileg grínmynd að hætti Dana. Myndin er skotin í mjög einstökum klippum þannig að það er stundum skrýtið að horfa á en kemur mjög flott út. Mæli alveg með þessari fyrir þá sem vilja horfa á danskt efni og láta reyna á hversu vel danskan hefur haldist frá menntaskóla eða hefur bara gaman af súrum dönskum húmor.

Related posts from the blog:





