Inside Man

Fór á nýju myndina hans Spike Lee, Inside Man um daginn. Þetta virkar sem svona generísk bankaráns-mynd en kemur bara nokk mikið á óvart. Aðalhlutverkin eru í höndum Denzel Wasdhington sem aðal löggunar og Clive Owen sem forsprakka ræningjana. Það er svo sem ekkert margt sem gerist í myndinni en hún snýst aðalega út á það hversu snjall Clive Owen er sem ofur bankaræninginn og hvernig honum tekst alltaf að sjá við löggunum. Síðan kemur inn eitthvað frekar dauft sub plot um eiganda bankans sem fer algjörlega út fyrir allt. Þetta er alveg mjög fín mynd til að horfa á einu sinni hvort sem er í bíó eða á DVD.
Einkunn: 4/5


Related posts from the blog: