Iron Man

Skellti mér á Iron Man í gær og hún kom skemmtilega á óvart. Maður fór nú inn með smá væntingar þar sem að trailerinn var spennandi og vakti áhuga manns á myndinni strax. Flestir hafa nú heyrt um Iron Man einhvertíman en Iron Man er Tony Stark sem er vopnaframleiðandi/ vísindamaður/ glaumgosi/ ofurhetja í Marvel teiknimyndasögu heiminum. Maður hafði áhyggjur af því að allt sem gerðist í myndinni hefði þegar komið fram í trailernum en svo er ekki og samsetningin á myndinni er mjög góð þar sem handritið er greinilega skrifað með Tony Stark sem glaumgosa og það skín vel í gegn að maðurinn er mjög fyndinn og samtölin í myndinni eru greinilega skrifuð til að höfða til sem flestra. Söguþráðurinn fer nokkuð vel í hvernig Tony Stark er rænt af hryðjuverkamönnum og býr til fyrsta Iron Man búninginn og þróar hann svo áfram eftir að hann sleppur og er söguþráðurinn því áþekkur á við teiknimyndasögurnar.

Þetta er greinilega besta teiknimyndasögu mynd Marvel, ef ekki besta í heildina (á mjög erfitt með að gera upp á milli hennar, Batman Begins og V for Vendetta). Þetta er skemmtileg ævintýramynd, fyndin og spennandi. Mæli með að allir sjái þessa.

Niðurstaða: Skelltu þér á myndina í bíó



Related posts from the blog: