LEGO Indiana Jones

Uhhhjeee, nýja Indiana Jones myndin verður frumsýnd á fimmtudaginn og ég er oðinn mjög spenntur fyrir því að sjá hana. Einnig er nýji LEGO Indiana Jones leikurinn að koma út í næsta mánuði:

Demoið af leiknum kom út fyrir helgi og er hægt að sækja hér. Leikurinn spannar allar þrjár gömlu myndirnar. Spilunnin er einföld en þó ágætis afþreying og með einhvern mótspilara með sér alveg fínasta afþreying. Las að leikurinn væri frekar stuttur þannig að kanski maður hafi færi á að spila hann sér til dægrastyttingar í sumar.

Hér er kynningar trailerinn:

Það er frekar fyndið að pæla í Indiana Jones með LEGO uppsetningu og þetta comic strip setur það upp á frábæran hátt:


 

Rakst einnig á frekar fyndið viral vídeó sett saman í tilefni leiksins þar sem atriðið að ofan er sett upp með “stein” úr 5 milljón LEGO kubbum, ekkert smá mikið rugl:


Related posts from the blog: