Mýrin

Hvað gerði maður ekki eins og flest allir aðrir Íslendingar á sunnudaginn, jú maður fór á sjá Mýrina (ályktað út frá röðunum í miðasölu). Myndin er að sjálfsögðu byggð á samnefndri bók Arnalds Indriðasonar og leikstýrð af Baltasar Kormák. Sagan sem margir kannast við fjallar um morð á manni að nafni Holberg sem er arfðberi sjaldgæfs sjúkdóms sem uppúr spinnst spennandi og athyglisverð atburðarrás. Aðal persónurnar eru mjög sterkar og fer Ingvar E. Sigurðsson á kostum sem lögreglumaðurinn Erlendur og aðir leikarar standa sig mjög vel í sínum hlutverkum og koma persónum bókarinnar vel til skila. Ég var meira segja ánægur með leik Ágústu Evu á Evu Lind dóttur Erlends. Það voru nokkur atriði þar sem samtöl voru aðeins of mikið eins og þau væri beint kóperuð úr bókinni en á heildina var þetta frábær mynd og mæli með að fólk kíki á hana.

Sá líka trailerinn af Köld Slóð sem Elva frænka leikur í, leist rosalega vel á hann og hlakka til að sjá myndina í desember.


Related posts from the blog: