Pirates of the Caribbean – At World’s End

Fór að sjá Pirates of the Caribbean – At world’s end, seinustu myndina í þrennunni (gefið að þeir framleiði ekki aðra). POTC myndirnar eru frábærar ævintýra myndir og í miklu uppáhaldi hjá mér. Hef horft á fyrstu myndina þó nokkru sinnum og aðra myndina þrisvar og er að íhuga hvort ég eigi að skella mér í bíó á þessa aftur, bara einu sinni gert það áður og það var Sin City og með þriggja mánaðar millibili, heimsku bíó að fresta sýningu… Allavegana þá er þessi beint framhald af annari myndinni og hefst á því að Will, Elizabeth og Barbossa hefja leið sína að endimörkum hafsins til að finna og heimta Jack Sparrow aftur frá helju. Einnig áætla þau að stöðva Lord Beckett sem hefur sagt öllum sjóræningjum stríð á hendur og með Flying Dutchman í broddi fylkingar stefnir hann á að útríma öllum sjóræningjum Karabískahafsins. Þetta er frábær og skemmtileg ævintýra mynd eins og fyrri myndirnar og algjör skyldu áhorf fyrir þá sem höfðu gaman af eitt og tvö. Það eru nokkut göt í söguþræðinum og myndin er svoldið löng en það er ekkert sem skemmir áhorfið. Einnig kemur endirinn svoldið á óvart, hann er glaðvær en ekki mjög Disney legur.


Related posts from the blog: