Spider-Man 3
Posted on May 8, 2007 in MoviesFór að sjá Spiderman 3 í fyrradag, verð eiginlega að segja að miðað við 1 og 2 þá var ég frekar svekktur. Myndin fer ótrúlega úr einu í annað, Peter Parker lendir í veseni með Mary Jane sem hann ætlar að biðja. Flint Mark (Sandman) flýr fangelsi og kemur í ljós að hann drap frænda Peter. Loftsteinn með “alien costume” lendir á jörðinni. Harry Osborn verður klikkaður, missir minnið, verður klikkaður aftur, verður góður yadayadaya…. Eddie Brock öfundar Peter. Peter verður geðveikur af geimveru mumbojomboinu. Peter áttar sig svo á að mumbojomboið er vont og losar sig við það. Mumbojomboið fer á Eddie sem verður Venom í svona tíu mínútur. Peter og Mary Jane klára myndina svo sem happy go far par.
Það verður að segjast að plotið í myndinni er alveg ótrúlega illa sett saman og það er eins og ekkert handrit hafi verið skrifað heldur hafi myndin verið unnin úr stuttum línum eins og lýsingunni hér að ofan. Svo eins og í hinum Spiderman myndunum var að sjálfsögðu þetta blessaða væl og vesen á þessum blessaða dreng sem tókst að troða sér inn sem miðpunkt myndarinnar þegar miðpunkturinn ætti að sjálfsögðu að vera Spiderman að berjast við vondukallana ekki hversu mikill asni hann væri við kærustuna sína… Alla vegana mæli ég með að fólk sleppi því bara að horfa á þessa mynd, hún skilur ekkert eftir sig en það er kanski allt í lagi að glápa á hana á dvd. Vonandi verður Spiderman söngleikurinn betri.

Related posts from the blog:





