Superman Returns

Ég, Óli og Óskar skelltum okkur á Superman Returns í gær um leið og færi gafst því maður er náttúrulega búinn að bíða allt of lengi eftir þessari mynd eða síðan 1997 þegar Kevin Smith skrifaði fyrsta handritið af myndinni. Myndin retconar burt atburðina í Superman III og IV en heldur eftir mörgu úr Superman I og II. Myndin hefst á endurkomu Supermans til jarðarinnar eftir fimm ára ferðalag í geimnum til Krypton og til baka. Margt hefur breyst í fjarveru Supermans en hann er snöggur að koma sér aftur í sess hjá jarðarbúum sem bjargvættur þeirra. Á sama tíma hefur Lex Luthor losnað úr fangelsi og skipuleggur nú enn eitt illa ráðið sitt og ætlar til þess að nýta þekkingu frá Krypton en auðvitað reynir Superman allt sem í hans valdi liggur til að stöðva hann.

Myndin sjálf er þokkaleg skemmtun þó hún sé töluvert löng (150 mín.) en það sár vantar eitthvað fleira af Superman hetju atvikum, það voru í raun bara tvö góð atriði þar sem maður var að hugsa vá töff þetta er sko Superman en restin er svoldil Amerísk vella. Ég fílaði hana samt nokk vel og kom ánægður út.


Related posts from the blog: