Sweeney Todd

Sá myndina Sweeney Todd – The Demon Barber of Fleet Street áðan. Myndin er nýjasta verk Tim Burton sem fjallar um Benjamin Barker sem er ranglega ákærður af glæp sem hann framdi ekki og færður í útlegð. Nokkrum árum síðar snýr hann aftur til London undir dulnefninu Sweeney Todd og kemur sér í að hefna sín á aristókrötum London borgar með hjálp frá Mrs. Lovett sem býr til verstu bökur í London. Myndin er mjög myrk og byggð á samnefndum söngleik þannig að það er frekar funky að horfa á myndina þar sem allir bresta í skrítin og dimm söng atriði hægri vinstri. Myndin er skemmtileg en örugglega alls ekki fyrir alla en klárlega fyrir þá sem eru hrifnir af Tim Burton.


Related posts from the blog:

Comments are closed.