Tenacious D: The Pick of Destiny

Ákvað að glápa á Tenacious D myndina í dag, myndin segir sögu þar sem Jack Black fer til Hollywood til að verða rokkari og hittir þar fyrir Kyle Gass og þeir mynda band saman en til að verða nógu góðir ákveða þeir að hafa uppá gítarnögl sem er búin til úr tönn djöfulsins og uppúr því hefst “ævintýrið”. Sagan er vægast sagt einföld og ekki mikið sem gerist í myndinni en það eru nokkur fyndin atriði í myndinni. Þetta er ágæt mynd til að horfa á einu sinni ef þú fílar Jack Black húmor en ég mæli ekki með að fólk eyði pening í að sjá þessa mynd í bíó.


Related posts from the blog: