Transformers
Posted on Jul 9, 2007 in MoviesFór með Óla á Transformers forsýninguna fyrir helgi og að sjálfsögðu fór maður með akkurat engar vonir því að það er búið að rústa nóg af 90′s franchise-um fyrir manni í gegnum tíðina. Það verður nú samt að segjast að þessi mynd er sko ekki í þeim flokki því að hún er alveg þrusu fín. Myndin er að sjálfsögðu endursögn á gömlu góðu sögunni um baráttuna milli Autobot vélmennana og hina illu Decpticon vélmenna þar sem unglingspilturinn Sam Witwicky blandast inní söguþráðinn þegar hann kaupir Autobot bílinn Bumblebee sem sinn fyrsta bíl og uppfrá því hefst söguþráðurinn fyrir alvöru. Myndin er stútfull af hasar og ótrúlegu magni af aula húmor sem var snilld. Ég er eiginlega bara að pæla í að skella mér aftur á hana þegar venjulegar sýningar hefjast.

Related posts from the blog:





