Unknown

Var að klára að horfa á myndina Unknown á DVD, miklu betri en ég var að búast við. Myndin er með tonn af fínum leikurum, bæði stjörnum og indie leikurum: Greg Kinnear, Barry Pepper, James Caviesel, Peter Stormare, Joe Pantilona, Jeremy Sisto, and Marke Boone Junior. Myndin fjallar um fimm menn sem vakna læstir inní skemmu og vita ekkert hverjir þeir eru, hvernig þeir komust þangað eða hvað gerðist. Þeir komast að því að tveir af þeim eru menn sem hefur verið rænt og hinir tveir hljóti þá að vera ræningjarnir en gallinn er að þeir vita ekki hver er hver þannig að þeir fara að leita vísbendinga sem gæti komið þeim á sporið um hver er hvað og hvernig þeir geta komist út. Hægt og rólega fara þeir svo að endurheimta minnið og þá fara allir að vera taugaveiklaðir og á móti hvor öðrum. Þetta er fín mynd til að skella sér að horfa á DVD, mæli með henni.


Related posts from the blog: