Beint á iPodinn – Desember
Posted on Dec 15, 2007 in MusicEftir að hafa misst úr alveg tvo mánuði af iPod færslum er kominn tími á að skella einni inn, svona akkurat þegar maður ætti að vera að læra undir seinasta prófið sitt.
Fyrri diskurinn sem mælt er með að fólk skelli á iPodinn sinn einn tveir og bingó í þetta skiptið er I am only a man með Emery. Platan kom svoldið á óvart en hún er aðeins rólegri en fyrri plötur Emery (sérstaklega miðað við The Weak’s End) en hún er alveg rosalega fín til að hlusta á samfellt og einhver svona notaleg tilfinning sem kemur yfir mann við að hlusta á hana. Uppáhalds lögin mín á henni eru “The Movie Song” og “Can’t Stop the Killer”, sjóðandi heitir smellir hér á ferð.
Seinni diskurinn er This is forever með She Wants Revenge. She Wants Revenge eru fáranlega góðir og tekst hér næstum að toppa fyrri plötuna sína sem er samnefnd bandinu. Platan er frekar fjölbreytt og aðeins annar vínkill tekinn á hana miðað við gömlu plötuna og það kemur alveg fáranlega vel út. Lagið “Rachael” stendur klárlega uppúr sem besta lagið og er búið að hringja inn á það play countið í iTunes hjá mér.


Related posts from the blog:
- Beint á iPodinn – September
- Beint á iPodinn – Apríl
- Beint á iPodinn – Apríl 2008
- Beint á iPodinn – Mars
- Beint á iPodinn – Júlí





