Beint á iPodinn – Janúar

Eftir gífurlega heimtufrekju frá Bjössa varð ég bara að koma með þessa færslu svo drengurinn deyji ekki úr hnakka tónlist frá Fannari sem blastar henni svo hátt í húsinu við hliðiná honum að Bjössa verkjar í eyrun og vill fá almennilega tónlist til að countera þetta.

Plötur mánaðarins gætu ekki verið ólíkari. Í alvöru þið gætuð lengi leitað en það yrði seint að þið mynduð finna jafn ólíkar plötur.

Fyrri platan er hin stórkostlega The Sufferer And The Witness með Rise Againt. Þessi plata kom út í hittí fyrra og er sú plata sem vakti athygli mína á Rise Against og skellti þeim beint á top 10 listan hjá mér. Besta lagið er klárlega Prayer of the refugee sem er svo geðveikt að ég fæ gæsahúð í hvert skipti sem ég hlusta á það. Úff verð eiginlega bara að skella því á núna. Einnig er lagið Worth Dying For næstum “worth dying for”, stórskemmtilegt og ferskt lag sem er geðveikt að hlusta á þegar maður er að hlaupa því maður fyllist allur eldimóð og ýtir sjálfum sér áfram af fullum krafti.

Eins og ég minntist á að framan er næsta plata algjör andstæða við þessa en það er einmitt plata frá manninum sem sá um geðveikasta jólaball allra tíma 21. desember síðast liðin. Enginn annar en Páll Óskar og nýja platan hans Allt fyrir Ástina. Þetta er fyrsta POP platan sem ég hef hlustað í gegn í heild sinni nokkur tíman og maðurinn á svo sannarlega hrós skilið fyrir frábæra plötu. Já, já sumir eiga örugglega eftir að segja að ég sé orðinn geðveikur og þetta sé ekki sú tónlist sem ég hlusta á og blah blah. Mér er alveg sama hvað fólk segir, já ég hata oftast POP tónlist en þetta er klárlega sú plata sem kom mér hvað mest á óvart á held ég bara allri ævi minni… Þrátt fyrir að platan sé öll stórskemmtileg eru þarna þrjú lög sem standa hæst uppúr en það er einmitt titil lag plötunar Allt fyrir Ástina ásamt Betra líf og International. Klárlega íslenska plata ársins 2007.


Related posts from the blog:


2 Comments

  1. Ert thu einhver geimvera sem stal likama hansa og greinilega heila lika.

    Eg meina,,,,, allt fyrir astina

    Come on………

    Kv, bjoggi ofur karlmadur sem myndi aldrei vidurkenna thad ad fila paul oscar (thratt fyrir ad hann eigi sinargodu hlidar.

  2. Bjöggi er ekki með réttu ráði. Ef allt fyrir ástina er ekki la ársins er alveg á hreinu að það er vídjó ársins og það segi ég að sjálfsögðu án allrar hlutdrægni(auðvitað)