Beint á iPodinn – Júní 2008

Hef ekki haft mikinn tíma til að hlusta á neina almennilega nýja diska í mánuðinum út af Mexico útskriftarferðinni þannig að ég ætla bara að mæla með tveimur lögum sem voru mikið spiluð í ferðinni. Hvorugt lagið hefur tónlistarmyndband en þið getið allavegana hlustað á þau hér að neðan.

Fyrst kemur lagið sem var tilnefnt lag ferðarinnar af Möggu og Tinnu. Það er lagið I Like To Fuck með Young Hot Rod og Tila Tequila. Þetta er ógeðslega fyndið og ótrúlega fyndið þegar fólk er búið að hlusta á það nokkru sinnum og fær það á heila og fer að söngla það uppúr þurru á almanna vettvangi:

 

Annað lagið er On the Grind með P.O.D. Mjög óvenjulegt lag frá P.O.D sem ég hef minnst á áður þegar ég mælti með Testify disknum frá þeim en geri hér aftur því það er mjög gott.


Related posts from the blog: