Beint á iPodinn – Júní
Posted on Jun 4, 2007 in MusicÞað er nú ekki búið að koma margir nýjir diskar sem vöktu athygli mína í maí en það var allavegana The Used og svo reyndar Travis diskur sem ég á eftir að hlusta á en allavegana þá er fyrri diskur mánaðarins Lies for the Liars með The Used sem kom út 22. maí og kom mér skemmtilega á óvart. Platan er frekar blendin en í flesta staði mjög skemmtileg, mæli sérstaklega með lögunum Pretty Handsome Awkward, Hospital og The Bird And the Worm.
Annars diskur þennan mánuðinn er snildar diskurinn Punk in Drublic frá NOFX. Punk in Drublic kom út árið 1994 og kom NOFX á kortið sem sértækustu og skemmtilegustu punk hljósveit samtímans (að mínu mati). Ég hlustaði fyrst á þessa plötu nokkrum mánuðum áður en NOFX kom til landsins að spila á Gauki á Stöng árið 2003 og féll strax fyrir frumlegum og athyglisverðum textum og þeirri einstöku tónlist sem platan inniheldur. Hreint út sagt frábær plata. Mæli sérstaklega með að hlusta á lögin Don’t Call Me White og Dying Degree.


Related posts from the blog:
- Beint á iPodinn – Júní 2008
- Beint á iPodinn – Mars
- Beint á iPodinn – Febrúar
- Beint á iPodinn – Maí 2008
- Beint á iPodinn – Júlí





