Beint á iPodinn – Maí 2008

Eins og venjulega eru þeir diskar sem ég mæli með þennan mánuðinn tveir. Fyrst ber að nefna Extreme Behavior með Hinder. Tónlistin með Hinder er rólegt rokk sem hentar við flestar stundir, hef verið að hlusta á þá mikið uppá síðkastið hvort sem ég hef verið að vinna verkefni í skólanum eða í ræktinni. Bestu lögin á disknum er klárlega Lips of an Angel og Better Than Me.

Seinni platan í þetta skiptið er nýja platan með Death Cab for Cutie, Narrow Stairs. Eftir góða lukku með Plans og Transatlanticism þá eru Death Cab For Cutie ekki koma með miklar breytingar í þetta skiptið og er í raun meira af svipuðu efni og áður. Mjög góð plata og þægilegt að hlusta á hana í gegn við hvaða aðstæður sem er. Uppáhaldslögin mín á plötunni eru Cath.. og You Can Do Better Than Me.


Related posts from the blog: