Beint á iPodinn – Maí
Posted on May 3, 2007 in MusicJæja nú er farið að styttast í sumarið og mæli ég með að fólk sem er að leita sér að sólskyns tónlist kíki á Sumarmixtape í boði Árna. Annars er fyrsti diskur mánaðarins diskurinn Traffic And Weather með Fountains of Wayne Hér á ferðinni fersk ný plata frá hljómsveitinni sem enginn kannast við nema lagið Stacy’s Mom þar sem Rachel Hunter fer á kostum sem Stacy’s Mom. Nýja platan er svoldið blendin er inniheldur nokkur frábær lög og þau sem eru í uppáhaldi hjá mér eru Someone To Love, New Routine, Michael and Heather at the baggage claim og Hotel Majestic.
Hin plata mánaðarins er vægast sagt frábær plata frá því í fyrra en það er Liberation Transmission með Lostprophets. Mennirnir hafa klárlega ógeðslegan tísku smekk enda fylgja “emo tískunni” en þessi plata er frábær í alla staði. Fjölbreytt, hress og skemmtileg tónlist hér á ferð. Það er erfitt að einangra lög sem skera sig úr hér sem bestu lög plötunar en þau sem eru með hæsta play count á iPodinum hjá mér eru Always All Ways, Everybody’s Screaming!!! og Heaven For The Weather, Hell For The Company.
Tvær mjög góðar plötur hér á ferð sem ég mæli með að fólk checki á.


Related posts from the blog:
- Beint á iPodinn – Maí 2008
- Beint á iPodinn – Febrúar 2008
- Beint á iPodinn – Júlí
- Beint á iPodinn – Ágúst
- Beint á iPodinn – Janúar





