Beint á iPodinn – Mars
Posted on March 9, 2007 in Music
Er svona að pæla í að gera beint á iPodinn að mánaðarlegum lið til að deila mínum súra tónlistasmekk :) Diskarnir þennan mánuðinn eru að sjálfsögðu tveir talsins og er sá fyrri What to Do When You Are Dead með Armor for Sleep. Þessi plata er reyndar orðin eins árs gömul en ekki margir sem hlusta á þessi gífurlegu snillinga hef fáranlega gaman af þeim mæli sérstaklega með því að hlusta á lögin Remember To Feel Real og Basement Ghost Singing, frábær lög.
Önnur platan er svo She Wants Revenge með She Wants Revenge, þetta er vægast sagt undarleg plata og alls ekki góð í alla staði en allavegana helmingurinn af henni er algjör snilld hinn helmingurinn er svona la-la. Mæli sérstaklega með lögunum Monologue, mjög mikið Trabant fílingur í gangi þar og svo Out of Control.


Related posts from the blog:




