Beint á iPodinn – Febrúar
Posted on Jan 31, 2007 in MusicVildi bara deila með öllum þeim frábæru diskum sem er að koma út næsta þriðjudag, fyrstur á lista er Weekend in the City með Bloc Party, þeirri snilldar hljómsveit Bloc Party frá Bretlandi. Diskurinn er að flestu leiti rólegri en Silent Alarm en algjör snilldar diskur sem er hægt að hlusta á í gegn aftur og aftur. Fremst í flokki er lagið Hunting for witches, fáranlega gott lag sem er komið með 50+ í play count á iPodinum. Hægt er að hlusta á diskinn í heild sinni á Myspace síðu Bloc Party.
Næsti diskur sem ég vil benda á er Infinity On High með Fall Out Boy. Fall Out Boy hefur nú ekki verið almennt í uppáhaldi fram að þessu þó ég hafi svo sannalega fílað þó nokkur lög í botn með þeim, sérstaklega útgáfuna þeirra af What is this? fyrir endurgerðina á Nightmare Before Christmas. Flest lögin á nýja disknum eru kröftug og skemmtileg og bestu lögin eru án efa Fame < Infamy og Thnks Fr Th Mmrs.
Mæli með að fólk checki endilega á þessum diskum hvort sem í verslunum þegar þeir koma út á þriðjudaginn eða nálgist þá á netinu.

Related posts from the blog:
- Beint á iPodinn – Febrúar 2008
- Beint á iPodinn – Apríl
- Beint á iPodinn – Júní
- Beint á iPodinn – Ágúst
- Beint á iPodinn – Mars





