Fyrstu hljómsveitir á Iceland Airwaves kynntar

Shitturinn titturinn, ég held að ég hljóti að hafa gert eitthvað gott í seinustu viku því að gæfan gjörsamlega brosir við mér. Í gær var fyrsta prófið sem var einmitt Aðgerðagreining sem mér gekk bara svona ótrúlega vel í og þeystist í gegnum það þó svo að ég hafi þurft að nota 2 tíma og 59 mínútur til að klára prófið. Svo í dag var ég eitthvað að pæla í hvort maður ætti kanski að skella sér í helgarferð til Bretlands í sumar eða haust og láta loksins verða að því að sjá Bloc Party á sviði en nei hverjir heldurðu að hafi ekki látið sjá sig á fyrstu kynningu yfir bönd á Airwaves sem var kynntur í dag en einmitt Bloc Party. Nú vantar bara að Fall Out Boy boði komu sína og ég get opinberlega leyft sjálfum mér að missa mig í móðursýkiskast. Annars er frekar mikið af böndunum, allavegana íslensku, sama og í fyrra en fyrst Bloc Party eru eitt af fyrstu böndunum til að boða komu sína þá verður þessi hátíð geggjuð, hér er restin af listanum yfir fyrstu böndin en þau verða sirka 170 í heildina:

!!! (US)
Ampop (IS)
Bloc Party (UK)
Best Fwends (US)
Benni Hemm Hemm (IS)
Benny Crespo’s Gang (IS)
Buck 65 (CA)
Dikta (IS)
FM Belfast (IS)
Eberg (IS)
Esja (IS)
Gavin Portland (IS)
Gus Gus (IS)
Hjaltalín (IS)
Jenny Wilson (SE)
Jeff Who? (IS)
Kira Kira
Lay Low (IS)
Mammút (IS)
Motion Boys (IS)
Mugison (IS)
múm (IS)
My Summer as a Salvation Soldier (IS)
Ólöf Arnalds (IS)
of Montreal (US)
Pétur Ben (IS)
Reykjavík! (IS)
Retro Stefson (IS)
Seabear (IS)
Shadow Parade (IS)
Sign (IS)
Sprengjuhöllinn (IS) Steed Lord (IS)
Ultra Mega Technóbandið Stefán (IS)


Related posts from the blog:


1 Comment

  1. sæll, ég bara rakst á þessa síðu hjá þér og sá að þú varst eitthvað að tala um fall out boy.. helduru að það sé möguleiki að þeir komi hingað á airwaves?? þar sem ég er forfallinn fob aðdáandi hehe.. er hægt að hafa einhver áhrif á hverjir koma á airwaves..? kannski ekki nema maður sé forsetinn.. hehe