My heart will go on

Jæja enn ein helgin afstaðin og var bara ágæt fyrir utan lélega nýtingu fyrir lærdóm….. Á föstudaginn var heldur betur magnað stuð, við strákarnir hittumst á Kringlukránni uppúr þrjú í smá upphitun fyrir vísó. Eftir einn bjór héldum við svo á vit ævintýrana í vísindaferð til Exista. Verð að segja að fyrirlesturinn var frekar í þurrari kanntinum og konan sem var að kynna þetta var ekki alveg nógu vel með allt á hreinu en sem betur fer var samstarfsmaður hennar henni til aðstoðar og gat fyllt uppí það sem vantaði. Verð að segja að ég var massa sáttur með veitingarnar enda boðið uppá Thule, besta bjór í heimi. Þegar búið var að fá sér nokkra bjóra var svo haldið í rútu niður á Ölver þar sem var drukkið meira og svo að sjálfsögðu farið í magnað karaoke þar sem ég og Einar tókum fyrst á skarið og slepptum okkur með því að taka “My heart will go on” með Celine Dion :) Eftir Ölver var svo haldið niður í bæ þar sem var skrallað aðeins eins og venjulega.



Restin af myndunum
Myndir frá Maríönnu

Á laugardeginum var vinna eins og alla aðra laugardaga (einhver tíman á ég sennilega eftir að fá uppí kok af þessum laugardagsvöktum). Um kvöldið kíktum ég og Bjössi svo í afmæli hjá henni Söru, áður en farið var af stað og þegar mætt var á staðinn var mörgum mörgum Jack í Drambuie stútað og maður orðinn svoldið mikið vel í því. Bjössi tók sig svo til og fór í gamla góða elta uppi stelpuna modeið sem gekk víst ekki vel að mér skilst og ákveðið var að fara í fyrra fallinu heim (vá hvað það er langt síðan ég hef djammað almennilega lengi, það er hneyksli).


Related posts from the blog:

Leave a Reply