Neutral

Ég legg það ekki í vana minn að hata nokkurn hlut eða manneskju en þetta er hatur blogg og lesist sem slíkt. Þið hafið án efa einhvertíman séð þessar ógeðslega klénu auglýsingar á Neutral þar sem lítil börn eru látin vera að auglýsa þvottaefnið sem milt ofnæmisprófað og geðveikt nice fyrir krakka og þeir leggja alveg sérstaka áherslu á að það sé náttúrulegt og ofnæmisprófað, það er hamrað á þessum ofnæmisprófunum. Á mínu heimili hafa verið keypt mörg mismunadi þvottaefni í gegnum tíðina en Neutral hefur einungis verið keypt einu sinni. Það er mjög einföld ástæða fyrir því að Neutral var keypt einu sinni og ekki aftur, af öllum þeim þvottaefnum sem hafa verið keypt er þetta eina og ég meina eina efnið sem hefur valdið mér bloody útbrotum eftir að ég klæddist fötum þvegnum uppúr Neutral. Ofnæmisprófað minn rass.

Út af þessari reynslu af Neutral þvottaefni hefur það verið forðast síðan en í seinustu viku komst ég aftur í snertingu við Neutral og í þetta skiptið var það Neutral handsápa. Ég notaði þetta helvíti óaðvitandi að þetta væri Neutral og þvoði mér bara um hendurnar og pældi ekkert í því hvaða sápa þetta væri en nei þegar ég vaknaði morguninn eftir þá voru lófarnir á mér í algjöru tjóni og yrsta lagið á þeim alveg dautt þannig að það flagnaði allt af (er komið í lag núna sem betur fer):

Flestir sem hafa tekið eitthvað í náttúrufræði vita að sýrustig efna er gefið upp með pH gildi þess, vatn er “neutral” og hefur gildið 7.0 efni eru svo flokkuð frá sýru upp í basískan sóda eða frá -1 uppí 13,9. Heilbrigð húð hefur pH gildið 5,5 og hefðbundin sápa hefur gildi milli 9 og 10 (Dove sápa er hinsvegar með pH gildið 7 og er því mildari fyrir húðina heldur en hefðbundin sápa). Ég stend í þeirri meiningu að annað hvort sé Neutral með eitthvað brjálað hátt pH gildi (ammoníak er 11,5 og klór er 12,5 þannig að það þarf ekki að hafa verið það mikið hærra en 10) eða ég er hreinlega með ofnæmi fyrir öllu frá þessu Neutral merki.

Niðurstaðan er allavegana ljós, ég hata Neutral vörur og þær hata mig greinilega líka.


Related posts from the blog:


1 Comment

  1. Ég get ekki annað sagt en að þú ert búinn að bjarga mínum degi.
    Haturs blogg eru best. Samt fannst mér vanta smá reiði í þetta, blótsyrði og svoleiðis andskota.