Noise

Ég og Bjöggi ákváðum að skella okkur á tónleika með Noise á Ellefunni í gær. Um upphitunina sáu El Rodeo sem voru vægast sagt slappir, söngvarinn var alveg þvílíkt súr og með hrikalega stæla. Noise tók svo við að spila um miðnætti og þeir voru nokkuð góðir en þeir voru að kynna efni á nýju plötunni sinni sem er á leiðinni og það var ekki nærri jafn gott og sumt eldra efnið þeirra. Við meikuðum nú ekki að hanga alla tónleikana því að þó að Noise væru í lagi var Bjöggi ekki alveg að fíla þá þannig að við skelltum okkur á Vegamót og því við vorum snemma settumst við bara að spjalla svo þegar við vorum að fara hittum við Victor sem ég held barast að búi á Vegamótum. Þegar við fórum af Vegamótum ákvað Bjöggi að fara heim því að Magga var á bíl og á leiðinni heim og ég fór og hitti Héðinn og Eddu Láru og við skelltum okkur á Ellefuna og Vegamót. Fór svo heim í fyrra fallinu.


Related posts from the blog: