Nýnemar, Tuborg, Maraþon og Menningarnótt

Þá er skólinn byrjaður á fullu, allt komið í gang og manni strax farið að líða eins og maður sé eftirá, ohhh hvað ég hef saknað þess eða þannig. Seinast liðinn föstudag var haldinn nýnemadagur HR þar sem stjórnir nemendafélaga og nokkrir duglegir nemendur ásamt starfsfólki skólans tóku á móti nýnemum við skólan og bauð þá velkomna. Nemendur fengu klassísku ræðurnar og kynningu á aðstöðu skólans og aðbúnaði og var svo boðið í grill þar sem ég og Elli grilluðum pylsur eins og eldibrandar. Dagurinn heppnaðist frábærlega og allir virtust sáttir.

Um kvöldið var síðan haldið á vit ævintýrana í Tuborg útilegunni 2007. Ég ætla ekki einu sinni að fara út í hvað það var mikið af veseni í kringum þessa útilegu. Elli greyið var kominn með svo stórt magasár á tímabili að það sást næstum í gegnum hann. Blessunarlega gekk allt upp að lokum og farið var í Þrastarskóg þar sem allir djömmuðu af sér rassgatið bæði edrú sem drukknir. Sjálfur var ég ekki að drekka enda stefnan að vakna snemma og fara að hlaupa. Var samt alveg til klukkan hálf tvö í útilegunni en brunaði svo heim í rúmmið góða.

Er ekki með neinar myndir úr útilegunni því vélin var alveg batteríslaus en er með nóg af video sem þarf að klippa og kemur á netið um leið og ég fæ 28 klukkutíma sólarhringa og hef tíma til að klippa það til.

Á laugardagsmorgninum rauk ég framúr allt allt allt of seint og hélt niður í bæ til að taka þátt í Reykjavíkur Maraþoninu. Fann ekkert stæði nema upp við Hallgrímskirkju og hljóp svo niður í bæ. Þegar ég kom niður á Lækjargötu voru allir lagðir af stað 10 mín á undan mér og ég leit út eins og asni að hlaupa á eftir þeim að reyna að ná hópnum. Eftir að ég náði hópnum, jafnaði ég hraðan og hélt mig í 5:00mín/km fyrstu tíu kílómetrana. Eftir fyrstu tíu var mig samt aðeins farið að finna til í hægra hnénu enda alltaf verið frekar slæmur í því. Út af því að ég var orðinn slæmur í hnénu dróg ég úr hraðanum og setti mig í 5:45mín/km og var það öll skárra.

Ég kláraði svo hálf maraþonið á 1 klst og 48 mín og var ánægður með þann tíma enda stefndi ég á rétt rúmar 4 klst í heilt. Gleðin entist ekki lengi því eftir 26 kílómetra gaf hnéið sig eiginlega bara og ég var alveg ónýtur í því. Sem betur fer var Hjörtur frændi nálægur á hjóli og reddaði mér Biotex á hnéið og síðar íbúfen til að halda mér gangandi. Ég hélt áfram á 7:10mín/km, lötrandi áfram. Eftir 34 kílómetra fór hnéið á mér bara í bloody verkfall og sagði hingað og ekki lengra. Ég neyddist því til að labba rétt rúma 6 kílómetra og leið eins og asna þegar fólk sem var á rólegheitar skokkinu var að taka fram úr mér. Seinustu tvo kílómetrana ákvað ég samt að bíta hressilega á jaxlinn, fékk auka skammt af Biotex frá Hyrti og spretti úr sporinu og kláraði á fínu tempói þó tíminn hafi verið hrikalegur eða 4 klst og 49 mínútur í heildina. Það er slæmt að hafa ekki náð almennilega í gegnum þetta því núna þarf ég að láta reyna á að fara aftur. Ég kláraði þó þetta helvíti og er bara heldur betur sáttur með það. Hjörtur frændi fær svo frábærar þakkir fyrir mikla hjálp enda hefði ég ekki getað klárað án hans.

Eftir hlaupið var farið beint heim, “hoppað” í vel heitt bað og slakað á. Síðan lagði ég mig í nokkra tíma og vaknaði svo ennþá þreyttur en þó tilbúinn í djamm gírinn og vel tilbúinn í bjór. Skellti mér til Gulla í Eyjamanna/Apple/Some peoples partý sem var hörku fjör, mikil drykkja og smá hamstra þema í myndatökunum. Endaði á að vera manaður í eitt stykki Hansa-Skot og hella smá yfir mig og var algjört tjón eftir það enda dauð þreyttur eftir hlaupið um morguninn. Eftir partýið hjá Gulla fórum við í bæinn og kíktum aðeins á Barinn. Þrátt fyrir að vera allt of drukkinn entist ég samt einhvernvegin til klukkan 6 um morguninn en það var meira bara af því að ég þurfti að bíða í þessari bloody leigubílaröð hefði annars farið fyrr heim…


Related posts from the blog: