Ofbeldisfulla pakk

Þá er fyrsta reykingarlausa helgin á börum íslands afstaðin og fór hún ekki vel hjá mér. Ég og Bjössi skelltum okkur til Magna og þar voru fyrir Snorri, Jói, Einar og Kári og var stefnan að kíkja í partý til Baldurs en við beiluðum einhvernvegin á því og fórum frekar beint í bæinn eftir smá veru hjá Magna. Það var frekar undarlegt að koma niður í bæ, byrjuðum á að kíkja á Ellefuna sem var næstum tóm enda gestir Ellefunar áræðanlega lítið hrifnir af reykingarbanninu en það var heavy nice að koma inn í ferskt loft, það hefur ekki gerst síðan ég var einhvertíman að sækja hljóðfæri þarna í hádeginu á þriðjudegi. Við fórum svo á Vegamót en það myndaðist akkurat massíf röð þegar við komum þannig að strákarnir beiluðu á Barinn en ég tróð mér inn. Inni hitti ég að sjálsögðu fyrir einn aðal styrktaraðila Vegamóta, Ella kallinn en hann hefur frá og með 20. apríl síðast liðnum flutt auka lögheimili sitt frá Morgunblaðshúsinu niður á Vegamót. Frá Vegamótum fór ég með Maríönnu, Gróu og Hörpu á Sólon og þegar ég fór upp stigan á Sólon þá fyrst fór kvöldið til fjandans.

Ég er ný kominn upp stigan og er eitthvað að kíkja eftir félögum mínum sem ég ætlaði að hitta en nei kemur þá ekki bara fokkin gaur sem ég hef aldrei séð á ævinni að mér og neglir í fokkin andlitið á mér, ég lýt við furðu lostinn og þá fæ ég annað hökk í andlitið og hrasa á gólfið og þá byrjar gaurinn að sparka í mig og er þá gripinn af einhverjum, sennilega dyravörðunum og dreginn í burtu. Ég hef aldrei lennt í öðru eins…. Ég hitti svo á Danna frænda þarna enn hálf vankaður og hann vildi ólmur fara að berja gaurinn en ég hafði ekki hugmynd um hver þetta hafði verið og honum hafði þegar verið hennt út en endaði á að fá far heim með Danna og Eddu.

Í dag mætti ég svo ferskur í vinnuna, í jakkafatabuxunum, skyrtu, bindi og flauelisjakka og svo með eitt gott glóðurauga og var eins og algjör bjáni.

Ég var ekki sá eini sem lennti í hremmingum og tilgangslaus ofbeldi um helgina. Hákon var barinn svo illa á föstudeginum að hann sér víst ekki almennilega út um annað augað sökum bólgu og þarf að vera með lepp. Einar var líka barinn bara fyrir að vera til og situr uppi með glóðurauga eins og ég. Kári var svo klóraður til blóðs af einhverri útúr dópaðri beyglu. Svo eru nokkur atvik í viðbót sem ég nenni ekki að telja upp en allavegana hefur ofbeldi verið gjörsamlega lýsandi fyrir næturlífið í Reykjavík þessa helgi, eins og hún átti að vera góð þegar rekingarnar yrðu einungis utandyra…..


Related posts from the blog:


2 Comments

  1. Ohh fokking aumingjar svo gaurar, hef sko lent í svona ruglli líka, var barinn í klessu eitt sumarið af hóp af einhverjum hálfvitum sem voru bara að leita eftir slagsmálum.

    Þarf ekki að setja upp myndavélar inná staðina til að grípa svona lúða?

  2. Ég er líka að sporta eitt stikki glóðurauga. Við værum ekki árennilegir saman, slagsmálahundarnir!
    Það er náttulega grín hvað þetta lið kemst endalaust upp með svona rugl. Það er bara tímaspursmál hvenær einhver af þessum rugludöllum á eftir að drepa. Það þarf ekki meira en eitt högg.

    kv.
    Mr. Justice