Októberfest

Úff gærdagurinn var góður eða ekki… á aðfaranótt föstudagsins vorum ég, Héðinn og Kári að klára fyrirlestur í fjárstýringu til klukkan fimm um morguninn. Við byrjuðum klukkan átta og þegar fór á líða á nóttina vorum við orðnir vægast sagt ruglaðir og vorum búnir að bæta allskonar rugli inní glærushowið eins og nýting hvers klukkutíma í verkefnið og fjöldi aulabrandara per klst og fleira. Síðan um nóttina misstu við okkur aðeins í ruglinu og þetta er afraksturinn:

Út af því að við vorum svona seint að þessu svaf ég bara 3 tíma og vaknaði of seint og dauð þreyttur en fyrirlesturinn gekk vel.

Seinna um daginn var síðan vísindaferð í Vistor þar sem fyrirtækið var kynnt og við fengum frábærar veitingar og síðan var haldið á Októberfest þar sem var brjálað stuð. Það var nóg drukkuð og margur maður kominn í ruglið. Lennti reyndar í frekar fyndnum viðburð þegar tveir stórir gaurar komu til mín og drógu mig allt í einu burt frá fólkinu sem ég var með, var ekki alvega að lítast á blikuna en svo kom í ljós að það var bara einhver stelpa sem vildi tala við mig og þeir höfðu verið fengnir til að sækja mig…. Eftir Októberfest var svo farið niðrí bæ þar sem ég gerði mig að fífli eins og svo oft áður aðalega með því að senda fólki fáranlega léleg SMS og rugl, ég á bara ekki að nota síma þegar ég er ölvaður. Svo fékk ég blackout eftir ákveðinn tíma sennilega út af svefnleysinu sem er ekki gott…. þannig að ég ætla bara að vera rólegur í kvöld.

Uhhh Airwaves byrjar á miðvikudaginn, hlakka fáranlega mikið til :)

Restin af myndunum


Related posts from the blog:

Leave a Reply